top of page

MÁLAÐ OFAN Á LJÓSRIT

Megináhersla þessa viðfangsefnis er að æfa málunartækni þar sem hver litaflötur er blandaður sérstaklega og litirnir lagðir hlið við hlið, án þess að blanda þeim saman á yfirborðinu sem málað er á. Nemendur gera nokkrar æfingar þar sem þeir mála beint ofan á ljósrit til þess að kynnast aðferðinni og æfa sig. Í framhaldi af því er verkið sjálft unnið. Æfingin tekur bæði til málunartækninnar og litablöndunar en nemendur hafa aðgang að okkur gulum, crimson rauðum og prussian bláum eða svipuðum litum, og svörtum og hvítum. Þeir sjá sjálfir um að blanda þá litatóna sem þeir þarfnast. 

bottom of page