top of page

HLUTATEIKNING

Þetta verkefni þjálfar nemendur í teikningu en viðfangsefnið er hefðbundið kyrralíf sem er þó einfalt þar sem nemendur eru að taka fyrstu skrefin í aðferðinni. Nemendur byrja að greina og teikna upp stóru formin í fyrirmyndinni og notast við form sem nemendur koma til með að nota áframhaldandi í námi, til að mynda hring, ferning, sívalning og keilu. Að því loknu vinna nemendur í smáatriðum myndarinnar og að lokum skoða þeir skugga. Nemendur gera nokkrar mismunandi æfingar til að þjálfa aðferðina. Í verkefninu æfa nemendur formfræði og jákvætt og neikvætt rými.

bottom of page