top of page

FRJÁLS AÐFERÐ

Leirmótun er fjölþætt og þjálfar margvíslega tækni. Nemendur fá að kynnast leir almennt, mótun hans, hrábrennslu og glerjun og gljábrennslu.

 

Í þessu verkefni fá nemendur fræðslu um þrjár mismunandi aðferðir í leirmótun; fingraðaferð, slönguaðferð og plötuaðferð. Megin áhersla er lögð á að nemendur hanni sinn eigin grip og fer dágóður tími í hugmyndavinnu. Þegar hugmyndin er fullmótuð, velja nemendur þá aðferð sem hentar hugmyndinni best. Þannig fá hugmyndir nemenda að stjórna för, fremur en aðferðin sjálf. Eftir hrábrennslu nota nemendur leirliti og/eða glerunga til að leggja lokahönd á gripinn áður en hann er gljábrenndur.

bottom of page