top of page

FJARVÍDD, 1. PUNKTUR

Í þessu verkefni vinna nemendur með fjarvídd en góð þekking á fjarvíddarlögmálum er ein undirstöðu hæfni í teikningu.

Í upphafi er rætt um fjarvídd til að kynna nemendur fyrir lögmálinu. Þeir skoða nánasta umhverfi sitt og greina fjarvíddina allt í kringum sig en hún er einna mest áberandi í þeim byggingum sem nemendur sjá, til að mynda út um glugga. 

 

Í framhaldi af því fá nemendur kennslu í hvernig á að teikna byggingu með einum fjarvíddarpunkti. Gerðar eru skyssur á meðan nemendur reyna að ná tökum á tækninni. Síðan gera nemendur byggingu á A3 eftir eigin höfði og fylgja lögmálinu.

bottom of page