top of page

INNGANGUR AÐ FJARVÍDD

Í þessu verkefni kynnast nemendur fjarvídd en góð þekking á fjarvíddarlögmálum er ein undirstöðu hæfni í teikningu.

Í upphafi er rætt um fjarvídd til að kynna nemendur fyrir lögmálinu. Þeir skoða nánasta umhverfi sitt og greina fjarvíddina allt í kringum sig en hún er einna mest áberandi í þeim byggingum sem nemendur sjá, til að mynda út um glugga. 

 

Í framhaldi af því fá nemendur einfallt sniðmát þar sem búið er að draga sjóndeildarhring og línur í einn punkt fyrir miðju en þannig myndast auður akur. Nemendur teikna síðan inn uppskeru á hvern flöt og gæta þess að hún fari minnkandi því fjærri sem hún er. Að lokum er verkið litað með trélitum.

bottom of page